Skráðu þig á póstlista
brandr vörumerkjastofa
kt. 540606-0210
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Ísland
(+354) 787-7007
hallo@brandr.is
Persónuverndaryfirlýsing
Viðhorfahópur brandr
Vitund er stefnumótunarverkfæri sem hjálpar stjórnendum að sjá á einfaldan og hagkvæman hátt hvort stjórnendur og starfsfólk eru að stefna í sömu átt eða hvort þörf er á áherslubreytingum t.d. í innri markaðssetningu.
Æfingin fer fram sem spil í vinnustofum hjá brandr og er leidd af ráðgjöfum. Allir þátttakendur fá jöfn tækifæri til að koma sinni skoðun á framfæri. Niðurstöðurnar sýna hvernig þátttakendur upplifa fyrirtækið í dag og framtíðarsýn þeirra. Æfingin skapar mikilvægar samræður um frammistöðu vörumerkisins eða fyrirtækisins og hjálpar fyrirtækjum að greina veikleika og styrkleika og skoða stefnuna með augum starfsmanna. Þessi aðferð er hagstæð og góð leið til að fá fram sjónarmið ólíkra hópa innan fyrirtækisins.
Eftir vinnustofur er útbúin skýrsla sem sérfræðingar brandr kynna fyrir stjórnendum fyrirtækis. Rýnt er í sjálfsmynd vörumerkis en það er sú mynd sem starfsfólk hefur á eiginleikum eigin fyrirtækis. Skýr sjálfsmynd bætir samskipti við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila og stuðlar að sterkari ímynd út á við.
Ímyndaruppbygging hefst alltaf innan veggja fyrirtækisins og er því mikilvægur hluti af stefnu. Niðurstöður úr vitundarspilinu kjarna sjálfsmynd fyrirtækisins eða vörumerkisins í hugum þátttakenda og er skilað í formi leiðarljósa fyrir stjórnendur. Stjórnendur nýta síðan leiðarljósin til stefnumótunar eða til að sjá hvort breytinga er þörf í innri markaðssetningu.
Sterk sjálfsmynd fyrirtækja er grundvöllur fyrir því að vörumerki geti hámarkað árangur og arð því ímynd úti á markaðnum á að vera spegilmynd af sjálfsmynd.
Við bjóðum upp á að hafa einstaka vinnustofur á ensku ef óskað er og einnig að spila að rafræna vitund með appi þar sem stórir hópar geta tekið þátt í tölvu eða síma.
Vinnustofan er framkvæmd af brandr með stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins og fer fram með því að spila Vitund, skemmtilegt spil þar sem sjálfsmynd vörumerkis er greind og kjarninn fundinn. Fyrst er skoðað hvernig starfsfólk sér vörumerkið eða fyrirtækið í dag og síðan hvernig starfsfólk myndi vilja sjá vörumerkið í framtíðinni.
Starfsfólki er skipt í hópa sem samanstanda af 4-6 einstaklingum. Æfingin skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum velur hópurinn spil út frá því hvernig hann metur núverandi sjálfsmynd vörumerkisins. Í seinni hlutanum velur hópurinn spil út frá því hvernig hann vill að sjálfsmynd vörumerkisins verði í framtíðinni.
Eftir vinnustofur er útbúin skýrsla sem sérfræðingar brandr kynna fyrir stjórnendum fyrirtækisins. Helstu niðurstöður eru rýndar og rætt um mögulegar úrbætur.
Vitundar appið hentar vel fyrir stærri fyrirtæki sem vilja taka púlsinn á stórum hóp. Spilið fer fram með sama hætti og er stýrt af sérfræðingi frá brandr en starfsmennirnir taka þátt í tölvu eða síma.
Hentar einnig mjög vel með vinnustofum til að heyra frá stærri hóp í fyrirtækinu til samanburðar við hefðbundnar vinnustofur.
brandr vörumerkjastofa
kt. 540606-0210
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Persónuverndaryfirlýsing
Viðhorfahópur brandr
brandr vörumerkjastofa
kt. 540606-0210
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Ísland
(+354) 787-7007
hallo@brandr.is
Persónuverndaryfirlýsing
Viðhorfahópur brandr
brandr vörumerkjastofa
kt. 540606-0210
Borgartún 25, 105 Reykjavík
(+354) 787-7007
hallo@brandr.is
Persónuverndaryfirlýsing
Viðhorfahópur brandr