brandr vísitalaer markaðsrannsókn hönnuð til að auðvelda líf stjórnenda sem þurfa að hafa trausta innsýn í stöðu fyrirtækja eða einstaka vörumerkja á markaði. Hagkvæm og notendavæn lausn sem hentar öllum gerðum fyrirtækja.
Hingað til hafa stjórnendur þurft að púsla saman margskonar gögnum til að fá raunverulega innsýn í hvernig viðskiptavinir/neytendur upplifa alla mikilvægustu snertifleti við vörumerkið. Við erum með betri lausn, brandr vísitala er hagnýtt og notendavænt verkfæri fyrir stjórnendur sem veitir dýrmætan samanburð við önnur vörumerki.
brandr vitunder stefnumótunaræfing sem hjálpar stjórnendum að sjá á einfaldan og hagkvæman hátt hvort stjórnendur og starfsfólk stefni í sömu átt eða hvort þörf er á áherslubreytingum t.d. í innri markaðssetningu.
Æfingin fer fram sem spil í vinnustofum sem eru leiddar af ráðgjögum brandr. Allir þátttakendur fá jöfn tækifæri til að koma sinni skoðun á framfæri. Niðurstöðurnar sýna bæði hvernig þátttakendur upplifa fyrirtækið í dag sem og framtíðarsýn þeirra.
brandr vörumerkjarýnier stefnumótunarferli þar sem fagleg nálgun er notuð til að greina staðfærslu vörumerkja og stöðu þeirra á markaði. Í kviku umhverfi atvinnulífsins þurfa stjórnendur sífellt að vinna með stefnu, sérfræðingar brandr eru öflugur liðsauki.
Við vinnum út frá gögnum og notum helstu greiningaraðferðir markaðs- og vörumerkjafræða. Fyrirliggjandi gögn eru rýnd og framkvæmdar eigindlegar og megindlegar markaðsrannsóknir til viðbótar. Niðurstöður greininga eru notaðar til að móta áherslur í stefnu vörumerkisins.
brandr vísitalanmælir þær tengingar í huga viðskiptavina sem mestu máli skipta.
Það er ekki bara gott að vita niðurstöður vísitölunnar heldur nauðsynlegt.
Mælingartólið er afrakstur 8 ára þróunarvinnu en hún mælir 30 þætti sem mikilvægi vörumerkja byggja á. Virði vörumerkja kemur öllum við, sama hvort það sé einstök vara, fyrirtæki á einstaklingsmarkaði eða á fyrirtækjamarkaði.
Með því að huga vel að vörumerkinu þínu eykst arðsemi heildareigna.
Sjálfsmynd vörumerkis er sú mynd sem starfsfólk hefur á eiginleikum eigin fyrirtækis. Afmörkuð og skýr sjálfsmynd er grunnur að því að skapa góð tengsl við viðskiptavini.
brandr vitunder æfing sem er framkvæmd með starfsmönnum fyrirtækis þar sem sjálfsmynd vörumerkis er greind út frá því hvernig hún er talin vera í dag og því hvernig starfsfólk vill að hún verði í framtíðinni.
brandr vörumerkjarýni sem brandr framkvæmir á vörumerkjum skiptist í nokkra þætti. Í innri rýni er sjálfsmynd vörumerkisins skoðuð út frá viðhorfum starfsfólks.
Í ytri rýni er ímynd skoðuð út frá viðhorfum viðskiptavina. Við gefum okkur tíma til að kafa dýpra með það að markmiði að finna kjarnann í virðissköpun vörumerkisins.
Við vinnum með íslenskum fyrirtækjum, af öllum stærðum, að verkefnum sem tengjast markaðsmálum og vörumerkja-stjórnun. Okkar ráðgjöf hjálpar fyrirtækjum að skilgreina þau tækifæri og ógnanir sem liggja á markaðinum ásamt því að takast á við þær áskoranir sem fylgja stefnubreytingum.
Við framkvæmum úttektir á vörumerkjum og auðveldum fyrirtækjum að leggja mat á hvernig vörumerki tengjast fólki. Oftast þarf aðeins að laga smáatriði en í sumum tilfellum kemur í ljós að þörf er á stefnu-breytingu og nýrri ásýnd vörumerkisins. Við auðveldum fyrirtækjum að taka ákvarðanir varðandi vörumerkjastjórnun.
brandr vísitalan er gagnagreiningartæki sem mælir það sem skiptir máli fyrir hinn almenna neytanda og mælir styrkleika vörumerkis til að bera þau saman við önnur vörumerki.Vörumerki sem mynda sterkar og jákvæðar tilfinningar í hugum neytenda ná meiri árangri og endast lengur.
Við vinnum með íslenskum fyrirtækjum, af öllum stærðum, að verkefnum sem tengjast markaðsmálum og vörumerkja-stjórnun. Okkar ráðgjöf hjálpar fyrirtækjum að skilgreina þau tækifæri og ógnanir sem liggja á markaðinum ásamt því að takast á við þær áskoranir sem fylgja stefnu-breytingum.
Við framkvæmum úttektir á vörumerkjum og auðveldum fyrirtækjum að leggja mat á hvernig vörumerki tengjast fólki. Oftast þarf aðeins að laga smáatriði en í sumum tilfellum kemur í ljós að þörf er á stefnu-breytingu og nýrri ásýnd vörumerkisins. Við auðveldum fyrirtækjum að taka ákvarðanir varðandi vörumerkjastjórnun.
brandr vísitalan er gagnagreiningartæki sem mælir það sem skiptir máli fyrir hinn almenna neytanda og mælir styrkleika vörumerkis til að bera þau saman við önnur vörumerki.Vörumerki sem mynda sterkar og jákvæðar tilfinningar í hugum neytenda ná meiri árangri og endast lengur.
Leiðtogafundir og málstofur
Við viljum efla og ræða vörumerkjastjórnun. Vörumerki sem starfa eftir vel skilgreindri stefnu ná meiri árangri en önnur vörumerki. Fyrirtæki sem skilja hvernig vörumerki þeirra skapa huglægt virði hjá viðskiptavinum eru betur í stakk búin til að mæta áskorunum. Leiðtogafundir og málstofur brandr er vettvangur sem við höfum skapað til að taka þá umræðu með stjórnendum fyrirtækja, markaðsfólki og áhugafólki um vörumerkjastjórnun.

Skráðu þig á póstlista brandr. Við fjöllum reglulega um málefni tengdum vörumerkjastjórnun og flytjum fréttir af starfseminni.
Fréttabréf
Skráðu þig á póstlista brandr. Við fjöllum reglulega um málefni tengdum vörumerkjastjórnun og flytjum fréttir af starfseminni.
Um okkur
brandr talar um tilfinningar. Við skoðum og eflum þær tilfinningar sem fólk tengir við vörumerki. Við viljum styrkja sambönd vörumerkja og neytenda. Jafnframt auðveldum við fyrirtækjum að fara betur með auðlindir með því að auka skilvirkni og hagkvæmni markaðsstarfs, stefnumótunar og mannauðsstarfs.

Það er gömul saga og ný að árangur fyrirtækja er tileinkaður hæfu og framúrskarandi starfsfólki. Enda eru flest fyrirtæki lítið án fólksins sem þar starfar.
Svissnesku Alparnir Ár hvert heldur alþjóðaefnahagsráðið ráðstefnu í Davos, litlum fjallabæ í Sviss, þar sem fjallað er um félagsleg og efnahagsleg vandamál heimsins. Í maí