fbpx

Stjórnendur Haga leituðu til brandr í upphafi nýrrar stefnumótunarvinnu sem hófst í upphafi árs 2021 fyrir vörumerkin Hagkaup, Bónus og Olís. Markmið þeirrar vinnu var meðal annars að efla samband við viðskiptavini, skilja þá betur og hjálpa þeim að skilja betur starfsemi þessara vörumerkja. Mikilvægur hlekkur í þessu verkefni var m.a. að móta ásýnd og aðgreiningu vörumerkjanna þriggja sem var gert með vörumerkjarýni fyrir hvert vörumerki. Vörumerkjarýni er í grunninn stefnumótunarvinna, unnin af ráðgjöfum brandr ásamt starfsfólki hvers vörumerkis fyrir sig, sem varð að lokum grunnur að nýrri vörumerkjahandbók.

Vörumerkjahandbókin hefur nú verið nýtt við innleiðingu nýrrar ásýndar Bónus sem meðal annars hentar betur fyrir þá stafrænu miðla sem nú eru við lýði. Vegna þess hve djúpar rætur Bónus á í íslensku samfélagi þótti mikilvægt að halda vel í og skerpa betur á kjarna vörumerkisins í gegn um vörumerkjarýnina. Hér má sjá brot af þeirri vinnu sem brandr tók að sér í samstarfi við hina alþjóðlegu vörumerkjastofu Saffron Brand Consultants.

Verkþættir

Vörumerkjarýni

  • Vitund
  • brandr vísitala
  • Rýnihópar
  • Djúpviðtöl
  • Markaðsgreining
  • Greining gagna
  • Vettvangsferðir
  • Stefnuskjal

Hönnun

  • Skrifrænt auðkenniskerfi
  • Sjónrænt auðkenniskerfi
  • Vörumerkjahandbók

Innleiðing

  • Eftirlit með innleiðingu
  • Markviss rýni á birtu efni
  • Aðlögun á vörumerkjahandbók

Vörumerkjastefna

„Með þér í liði“

Ný ásýnd Bónus

Ný ásýnd Bónus var unnin í samstarfi við Saffron, samstarfsaðila brandr. Unnið var með ásýnd vörumerkis Bónus til þess að skýra línur þess í hugum neytenda. Grísinn hefur lengi verið myndgerving Bónus. Í sinni nýjustu útgáfu hefur hann verið fínpússaður þannig að hann gangi fyrir alla miðla Bónus og sé samstilltur stefnu vörumerkisins. Því er nýtt útlit Bónus bæði byggt á sterkri sögu vörumerkisins og þróun þess í takt við nútímann. Myndmerkið var parað við kraftmikið myndrænt mál sem sjá má hér að neðan.

Vinnan með brandr hjálpaði okkur að fínpússa vörumerkið og og gera það stílhreinna. Breytingin sem var gerð einfaldar áframhaldandi vinnu með vörumerkið og markaðsvinnu til framtíðar þannig að nú fer saman hljóð og mynd hvað varðar merkingar á búðum, auglýsingar, Bónus vörurnar o.s.frv.

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdarstjóri Bónus