fbpx

EFLA leitaði til brandr til að rýna betur í vörumerkið sitt. Stjórnendur EFLU vildu skilja betur hvernig vörumerkið birtist út á við sem og skoða innri viði félagsins. Lagt var af stað í vörumerkjarýni þar sem kjarni vörumerkisins var skoðaður. 

Verkþættir

Vörumerkjarýni

  • Brandr vísitala
  • Vitund
  • Rýnihópar
  • Viðtöl
  • Greining ganga
  • Markaðsrýni
  • Stefnuskjal

Vörumerkjaloforð

Leysir ögrandi verkefni með markvissri
þekkingarleit, lausnamiðaðri hugsun og smá
forvitni í samheldnum hópi sérfræðinga

„Vörumerkið EFLA varð til fyrir 15 árum og ljóst er að það hefur margt breyst frá þeim tíma. Þegar vörumerkið var sett fram var farið í sambærilega vinnu en við vildum athuga hvort hugmyndafræðin og hugsunin hafi staðist tímans tönn. Við fengum Brandr með okkur og farið var í innri rýni, ytri rýni og markaðsrýni. Það kom okkur skemmtilega á óvart að sumar áherslurnar sem settar voru fram fyrir 15 árum fylgdu vörumerkinu en jafnframt komu fram nýjar verðmætar áherslur sem við höfum fagnað. Í lok vinnunnar var mótað stefnuskjal sem við munum nýta sem okkar grunn í allri miðlun og áframhaldandi styrkingu vörumerkisins.
Brandr-liðar gáfu allt í verkefnið og voru mjög góð og fagmannleg í samstarfi. Þetta er langt ferli, stundum hefði verið auðveldara að hætta við en í lokin var niðurstaðan verðmæt og er leiðarvísir okkar í dag í allri miðlun vörumerkisins bæði heima og erlendis.“

Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, sviðstjóri Eflu